Aðalvalmynd

Hver er hún..

Móðir, unnusta, vinur, sjúkraliði, fótboltafrík, sófadýr, nammigrís, sjónvarpsfrík frá nafla alheimsins.

Auglýsing

Könnun

Ertu jólabarn ?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Í framhaldi af því síðasta...

25. mars 2008 klukkan 14:54
Ertu Skræfa?
Læturu valta yfir þig?

Ef þú svara nei ekki standa þá og bíða eftir að næsti taki af skarið fyrir þig!!
Mótmælum hækkuðu olíuverði!! Mótmælum hækkuðu verði bara yfirleitt!!

Það eru ALLIR búnir að fá uppí kok á hækkandi verði en enginn gerir neitt í því. Það er kominn tími á að segja STOPP á þetta! Við látum ekki bjóða okkur þetta kjaftæði lengur!


Þetta er lýðræði. Ekki einræði. !



Klukkan 16:30, þann 3. apríl, munum við sýna samstöðu sem þjóð og mæta fyrir utan ALÞINGISHÚSIÐ og mótmæla álagningu á olíuverði!!

Látum aðra sjá það, hvað við Íslendingar getum gert sem ein heild!! Ekki sitja heima og hugsa „hinn náunginn gerir þett svo ég er óþarfi“ ! Það er enginn óþarfi , við þurfum ykkur ÖLL til að mótmæla þessu!!

Við erum reið. Þú ert reið/ur. Sýnum þeim að við séum reið. Sýnum samstöðu.
Láttu þetta fréttast. Settu þetta á netið. Notað myspace-ið þitt eða bloggið þitt. Sendu sms.

Nú er komið nóg og láttu það fréttast!
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Verð

14. mars 2008 klukkan 09:48

Bensínverð er komið uppúr öllum hæðum, matarverðið er að verða þannig að maður týmir varla að kaupa sér í gogginn og þessu er bara leyft að gerast.
Ég skil ekki afhverju íslendingar geta aldrei sameinast um að hætta að kaupa ákveðnar vörur þegar þær hækka svona mikið. Eða er okkur bara alveg sama og hugsum ekkert um peningana ?
Ég veit það að ég ætlaði að fara niðrí bæ að erindast aðeins í dag, en bílinn er að verða bensínlaus sem þýðir það að ég þarf að kaupa bensín á okurverði. Ætti ég ekki bara að sleppa því að fara niðrí bæ?
Æi nei, verð að fara á pósthúsið með pakka svo ég verð að fara. Líka í búð og eyða pening þar.
Oohh þetta er svo dýrt !

Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Eitt fyrir Elsu ...

05. mars 2008 klukkan 09:51

Í dag eru sem sagt 5 vikur og 2 dagar í settan dag, 11.apríl ! Tengdapabbi heldur því fram statt og stöðugt að strákurinn komi 18.apríl á afmælisdeginum hans. Ég ræð svo sem engu til um það, en það væri ágætt ef hann væri ekkert að draga ferðalagið. Rifjaðist líka upp fyrir mér að þegar ég gekk með Friðgeir Örn þá var ég sett 12.maí, gekk 5 daga fram yfir og átti 17.maí. Svo að 16.apríl hljómar bara mjög vel ef út í það er farið  Svalur
Mamma ætlar svo að koma einhvern tíman um miðjan apríl og eyða vetrarfríinu sínu hérna. Það verður ljúft. Og örugglega frábært fyrir Friðgeir Örn að hafa hana hjá sér. En hann er mikið að velta því fyrir sér hvar amma og afi séu eiginlega.

Fer svo að fara að hætta að vinna, orðin vel þreytt og eiginlega hætt að sofa á nóttunni. Það er alveg ótrúlegt að maður skuli gleyma öllum þessu erfiðu tímum á meðgöngu svona fljótt. Annars stæði maður varla í þessu aftur Glottandi

Við erum bara búin að vera tvö í kotinu síðustu viku. Gunni fór til spánar að golfast, fengu svakalega gott veður og flotta velli. Ágætt að hann nái að svala mestu golfþörfinni núna fram að fæðingu. En það verður sjálfsagt eitthvað minni um golf í sumar en síðasta. Ég stefni nú á að fara á völlinn í sumar, varð svoldið sjúk þegar ég sá golfmyndirnar hjá Maríu.

Þvotturinn bíður víst

Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

07. febrúar 2008 klukkan 21:57
Hvað ætli fólk hafi bölvað veðrinu í dag.. ég held að ég hafi ekkert bölvað því. Finnst bara notalegt að hafa svona vont veður úti þegar maður getur kúrt inni. Þurfti reyndar að fara í bónus í dag en það var ágætt veður þá. En hins vegar þurfti að moka svalirnar áður en haldið var í búð. Og ég hélt ég gæti það ekki, óléttan er ekki alveg að höndla að moka svona. Þannig að ég tók það í tveimur skrefum. Svo þurfti ég að hjálpa fólki að ýta bíl þegar ég kom úr bónus. Svo þetta var bara ágætis frídagur Svalur

Fór svo í nudd í gær, og vá hvað það var yndislega gott. Tók um 80 mín og fór í baðstofuna á undan. Bara æðislegt. Á svo annan tíma sem ég ætla að nota í mars eða mjög fljótlega.. veit nefnilega ekki hvort ég geti beðið.
Svo er ég líka farin að busla í meðgöngusundi, það er líka algjör snilld. Sérstaklega þar sem ég er yfirleitt alltaf að drepast í grindinni og bakinu.

Já svo fer að styttast ansi mikið í fæðingu. Er samt eiginlega ekki að trúa því.. mun sjálfsagt ekki trúa því fyrr en hann er mættur á svæðið.
Litli stubburinn minn heldur mér svo upptekinni að ég hef ekki tíma í að hugsa um neitt annað Hlæjandi sem er bara gott.
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Aaaa

23. janúar 2008 klukkan 21:28

Aah er byrjuð í meðgöngusundi. Held að það verði bara ljúft, alla vega var fyrsti tíminn mjög góður. Þægilega mikil hreyfing og ótrúlega auðvelt í vatninu :) Er í kvöldtímum á reykjalundi svo ég get kíkt á mömmu þessi tvö kvöld í viku.
Annars er fyrsti góði dagurinn í dag eftir veikindin. Ójá, þetta er búið að taka þetta langan tíma. Vonandi að þetta sé samt farið og hafi farið langt útí buskann ! ;)

Annars er ég orðin alveg ringluð á borgarpólitíkinni.. alveg bit bara.
Hef þetta ekki lengra.. þarf að setja í uppþvottavélina Öskrandi

Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Aldrei var það tannpína

18. janúar 2008 klukkan 14:44

Úff hvað ég er fegin.. um leið og ljóta kvefið fór fór allur verkur úr kinninni og þar af leiðandi úr tönninni. Hringdi á tannlæknastofuna og þetta er víst mjög algengt. Svo enginn tannsi hjá mér í bráð Svalur 
En hins vegar er ég orðin veik Fýldur búin að engjast um af beinverkjum í tvo daga og með háan hita. Vill ekki taka mikið af verkjalyfjum svona ólétt, en lét það eftir mér í gær og úff. Það virkaði stutt og hvað ég lá í svitabaði í rúminu Öskrandi Svo er engan vegin hægt að sofa með beinverki svo ég lá andvaka til 02 svaf svo til 4 og var rétt að sofna almennilega kl 06:30 þegar að Friðgeir Örn kom uppí til okkar. Svaf svo til 13 í dag.. eins og er finn ég ekki fyrir hita né beinverkjum, húrra !! En hins vegar hafa þeir alltaf komið seinni partinn af fullum krafti. Svo ég þori ekkert að vona.

Það snjóar eins og ég veit ekki hvað þessa dagana. Reyndar mjög ljúft veður fyrir utan skaflana.. en alveg er það týpíst. Ég veik og kemst ekki út með stubbnum mínum.. En mamma ætlar að ná í hann í dag, ég hafði farið tvo síðustu daga og náð í hann og dó næstum því á meðan. Vegna kulda og almennrar vanlíðunar..
Úff, ég tala bara um veikindi Óákveðinn

Ég held að beinverkirnir séu að koma...  Fýldur Stoppa því hér !

Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Höfuðverkur og tannpína :(

07. janúar 2008 klukkan 20:58

Ég hef verið með höfuðverk síðan á nýársdag.. alveg að verða biluð. Hélt að ég væri komin með kinnholusýkingu eða í ennisholurnar. Hef ekki enn fengið svar við því, þar sem að ég hef ekki drattast til læknis. Svo pantaði ég mér tíma hjá tannlækni í dag, fæ ekki tíma fyrr en 23.janúar. Ég held að ég sé með skemmda tönn.. hef aldrei fengið tannpínu svo ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar. Er alla vega með seiðing í efri gómnum, get ekki staðsett hann og hausverk. Hvað er hvað og hvort er hvort..
Alla vega, ég byrja á tannlækninum.

Jólin voru yndisleg Brosandi mikið borðað eins og venjulega og góðar gjafir. Fékk tvö skipti í meðgöngunudd í Laugum. Hlakka til að nota það.. en langar ekki að nota það fyrr en ég er búin að fara til tannlæknis og losnuð við höfuðverkin.. hef það á tilfinningunni að ég njóti þess betur án þessara verkja.

Keyrðum í einum rikk til vopnafjarðar 28.desember og aftur til baka 5.janúar. Það var afskaplega góð ferð.. þar var bætt á matarbirgðirnar og ábyggilega kílóum. En þau mega sko alveg koma.. ekki miklar áhyggjur þar á ferð.

Friðgeir var svo í röraísetningu í dag. Ég get ekki lýst því hvernig er að sjá barnið sitt lognast útaf með grímuna fyrir andlitinu með tárin í augunum og reyna að berjast við að losna við þennan óþverra úr andlitinu. Hefði aldrei getað trúað því hversu erfitt það er.. var með  tárin í augunum þegar ég beið eftir honum (sem voru reyndar ekki nema um 10 mín). Held að það hafi reyndar verið eitthvað hormónakast.. eitthvað sem ég þekki vel þessar vikurnar. Hann var svo fljótur að vakna og leið vægast sagt illa eftir svæfinguna, en jafnaði sig fljótt þegar heim var komið.
Borðaði svo meira en ég í kvöldmatnum... enda búinn að fasta meiri hluta dagsins.

Vinna í fyrramálið og venjuleg rútína hefst við það.. það er ágætt. Ætla hins vegar núna að hoppa í bað, uppí rúm og lesa Harry Potter þangað til ég sofna..

Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Bara vika í jólin

17. desember 2007 klukkan 12:08
og ég á bara eftir að kaupa tvær. Þær verða keyptar á morgun, en í dag ligg ég í leti þar sem að ég er að fara á næturvakt í nótt. Og þar af leiðandi er ég að spara alla þá orku sem ég á. Ætla líka að taka jólakortin með í nótt og klára þau, en ég held að það séu bara ca 10 eftir.
Fór í smáralindina tvisvar núna í desember og það strax við opnun. Verð að minna mig á að fara bara á þeim tíma.. nákvæmlega ekkert að gera og ekkert áreiti.

Mamma, pabbi og Assi fóru svo í morgun áleiðis austur. Búin að vera í meira en mánuð.. Hittum þau svo aftur 29.des þegar við komum austur og verðum svo samferða mömmu og Assa suður. Assi að fara í tékk hjá doksa vegna ökklabrotsins sem hann varð svo óheppinn að verða fyrir í nóvember. Aðeins 10 vikur í gifsi !!! Og ég kvartaði yfir því þegar ég var í einar 5 vikur..
Mamma fer svo inná reykjalund 7.janúar sem mér lýst vel á. Hef bara heyrt gott um endurhæfingarmeðferðina sem er í gangi á reykjalundi.

Verður gott að komast austur í viku.. reyndar er vika alltof fljót að líða en það er betra en ekkert.
Það er möguleiki á að annað blogg komi í nótt...
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Jólabakstur

11. nóvember 2007 klukkan 14:12
Í næstu viku er bökunardagurinn ! jibbí hlakka svo til.. við Anna bökum alltaf saman fyrir jólin. Það er svo gaman, hlakka til að geta fengið mér engiferkökur með kaldri mjólk á kvöldin. Og slá nýtt met í að klára tromptoppana. Ætla svo að finna einhverja nýja uppskrift og líka að baka piparkökur. Leyfa Friðgeiri Erni að mála kökur.. en ætli það endi ekki í að "borða glassúrinn" :)
Fórum svo að keyptum jólagjöfina hans Friðgeirs í gær. Ætla að vera snemma í þessu.. fer að finna mynd í jólakortin og reyna að eiga desember í kósýheit og kökuát. Þurfa allar kökurnar að vera búnar áður en við förum austur. Fer líka að fara í að þrífa gluggana og týna upp seríurnar.. en ekki kveikja strax. Bara gott að vera búin að setja þær upp. Því ég er að vinna fyrstu helgina í desember og það á alltaf að kveikja á þeim 1.des :)

Var að fatta það að ég er að verða hálfnuð með meðgönguna. Vá þetta er svo fljótt að líða.. miklu miklu hraðar núna en síðast. Enda er barn á heimilinu sem heldur manni á tánum og það líður allt svo hratt þegar að börn eru í kringum mann. Finnst td ekki eins og Friðgeir sé að verða 18 mánaða !

Það er rigning.. og kalt. Nenni varla út..
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir

Rautt Maryland..

01. nóvember 2007 klukkan 12:01
..Kex er það besta sem ég fæ þess daganna. Með ískaldri mjólk.. uumm. Stúta reyndar heilum pakka í einu en það er bara holt og gott fyrir barnið og auðvitað mig ! Mér finnst ég blása út eins og hvalur.. Þessi var tekin í gærkvöldi, þá komin akkúrat 17 vikur. Læt þetta dug, Friðgeir Örn er veikur svo ég hef engan tíma í svona internetvafr !
Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir